Veröld/Fólk
| mbl
| 5.2.2012
| 18:36
Selirnir ánægðir með kuldann
Ekki eru allir ósáttir við frosthörkurnar í Serbíu að undanförnu. Selirnir í dýragarðinum í Belgrad eru hæstánægðir með hið lága hitastig og leika við hvern sinn fingur í laug sinni.
Önnur dýr þola kuldann síður og vilja helst vera inni á meðan svo kalt er. Hitalampar halda hlýjunni hjá þeim sem þola illa frostið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









