Unglingamynd í efsta sæti
Unglingamyndin Chronicle fór beint í efsta sætið á aðsóknarlista norðuramerískra kvikmynda um helgina en myndin er talin hafa aflað 22 milljóna dala tekna.
Þá fór draugamyndin The Woman in Black, sem Daniel Radcliffe leikur aðalhlutverkið í, beint í 2. sætið en myndin aflaði 21 milljónar dala tekna.
Contraband, sem Baltasar Kormákur gerði, fór úr 7. sæti niður í það 11. sæti en tekjur af sýningu myndarinnar í Bandaríkjunum nema samtals um 62 milljónum dala, 7,6 milljörðum króna.
Chronicle er einkum ætluð unglingum og fjallar um þrjú ungmenni sem búa yfir ofurkröftum. The Woman in Black fjallar um ekkjumann, sem sér drauga.
Myndin The Grey, með Liam Neeson í aðalhlutverki, fór niður í 3. sæti en myndin var í efsta sæti í síðustu viku. Myndin Big Miracle fór beint í 4. sæti en hún fjallar um tilraunir til að bjarga hvölum sem festust í ís. Drew Barrymore leikur þar aðalhlutverkið.
Listinn yfir þær myndir sem fengu besta aðsókn:









