Erfiðleikarnir byrjuðu fyrir ári

Heidi Klum og Seal á meðan lífið lék við þau. stækka

Heidi Klum og Seal á meðan lífið lék við þau. Reuters

Heidi Klum hefur verið þögul sem gröfin varðandi endalok hjónabands hennar og Seals og ekkert viljað láta hafa eftir sér í fjölmiðlum um málið. Hún hefur þó opnað sig við vini sína og sagt að brestir hafi komið í hjónabandið fyrir um ári.

Samkvæmt heimildamanni tímaritsins Look höfðu Klum og Seal átt við erfiðleika að stríða í hjónabandinu um alllanga hríð en fjara tók undan þeim í byrjun síðasta árs. Bæði eru að sögn miður sín yfir skilnaðinum en Klum hefur sagt vinum sínum að hann hafi ekki verið umflúinn. Seal hafi verið mjög erfiður í skapi og sveiflast á milli þess að vera ofsakátur og mjög reiður.

Haft er eftir heimildamanni blaðsins að Seal sé með mjög erfitt skap og reiðist oft. Hann geti verið ótrúlega skemmtilegur en hafi þann galla að æsa sig út af smámunum og margt komi honum úr jafnvægi. Skapofsi söngvarans hafi reynt mjög á Klum og hún hafi ekki haldið hjónabandið út lengur. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is