Veröld/Fólk
| mbl
| 6.2.2012
| 17:32
Fallegasti tónleikasalur heims
Söngkonan Kiri Te Kanawa flutti óvænt lagið Sveitin milli sanda á tónleikum í Hörpu í gær. Hún sagðist nú hafa sungið í „fallegasta tónleikasal heims“.
Kiri Te Kanawa var ákaft fagnað eftir tónleika sína í Hörpu í gærkvöldi. Í þriðja skiptið sem áhorfendur klöppuðu hana upp kom ung stúlka, Svala Gunnarsdóttir, upp á svið með nótur og afhenti söngkonunni. Eitthvað fór stúlkunni og söngkonunni á milli og í kjölfarið settist meðleikari Kiri, Julian Reynolds, við flygilinn og söngkonan tók sér stöðu við píanóið og parið flutti sönglag Magnúsar Blöndals heitins „Sveitin milli sanda“ við mikinn fögnuð viðstaddra, segir í fréttatilkynningu.
Söngkonan sagði við áhorfendur að nú hefði hún sungið í fallegasta tónleikasal í heimi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









