Gnarr heldur til Ameríku
Heimildarmyndin um framboð Jóns Gnarr og Besta flokksins, Gnarr, verður frumsýnd í Bandaríkjunum á morgun. Í viðtali sem birt er á Huffington Post segist Jón ekki ætla í forsetaframboð, en ætli að notfæra sér athyglina og halda blaðamannafund og „halda langa og flókna ræðu.“
Í upphafi greinarinnar lýsir Jón því að veturinn í ár sé sá snjóþyngsti til þessa. „Og þeir kenna mér um það,“ segir hann og hlær.
Jón segir í viðtalinu að nú þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ætli ekki að bjóða sig fram til forseta á ný, hafi nafn hans sjálfs verið nefnt til sögunnar. „Hann ætlar að hætta og fjölmiðlar gerðu kannanir á því hver almenningur vill að komi í hans stað. Þar hefur nafnið mitt verið í efstu fjórum sætunum.“ Í greininni segir að „djöfullegt“ glott hafi fylgt þessu svari Jóns.
Í greininni er rakið hvernig grínistinn Jón Gnarr hafi farið í framboð til borgarstjórnar, í gríni. Hann hafi unnið kosningarnar og nú sé rætt um hann sé næsta forseta landsins. Jón hafi hins vegar engan áhuga á því.
„En þetta er gaman og verður bara fyndnara með tímanum.“
Mynd Gauks Úlfarssonar, Gnarr! kemur út vestanhafs á morgun, samkvæmt viðtalinu í Huffington Post.
Fer í tölvuleiki á fundum
Jón segir langa fundi ekki vera sér að skapi. Sér leiðist að vera innan um „ringlað og reitt“ fólk. Það sé mjög þreytandi.
Og hvað gerir hann til að stytta sér stundirnar á slíkum fundum? „Ég fer í Fruit Ninja-leikinn í iPodnum mínum,“ svarar Jón.
Í greininni eru rifjuð upp nýársheit borgarstjórans sem hann setti fram í blaðinu Reykjavik Grapewine: „ Ég hlakka mest til að fá Obi Wan Kenobi-búning, klæðast honum og æfa Jedi-brögð,“ skrifaði Jón. „Ég vona líka að ég fái leyfi til að gefa fólk saman í hjónaband.“









