Vetrarhátíðin hefst fimmtudaginn 9. febrúar

Hallgrímskirkja stækka

Hallgrímskirkja mbl.is

Marcos Zotes, sigurvegari hugmyndasamkeppni Vetrarhátíðar í Reyjavík, og Chris Jordan munu hefja Vetrarhátíð í ár með verkinu Rafmögnuð náttúra en í því verki leikur Hallgrímskirkja aðalhlutverkið.

Verkinu verður varpað á framhlið kirkjunnar með hjálp skjávarpa og á það að skapa mikla upplifun hjá áhorfendum, samkvæmt fréttatilkynningu. Meðan á sýningu verksins stendur mun hljómsveitin For a Minor Reflection flytja frumsamda tónlist.

Í kjölfar opnunaratriðisins munu Marcos Zotes og Chris Jordan fremja gagnvirkan myndbandsflutning. Þá mun gangandi vegfarendum gefast þess kostur að hafa áhrif á það hvernig myndirnar varpast á kirkjuna. Í verkinu notast höfundar meðal annars við upptökur af virkni sólarinnar frá stjörnuskoðunardeild NASA.

Í tilkynningu frá höfundum verksins segir: „Einnig mun röð staðbundinna innsetninga ögra rýmisskynjun áhorfenda í gjörningi sem máir út mörkin milli kvikmyndunar, dans og arkitektúrs.“

Opnunaratriði hátíðarinnar hefst klukkan 19:30 fimmtudaginn 9. febrúar og aðrir viðburðir munu hefjast klukkan 20:00 og standa til miðnættis frá fimmtudegi til sunnudags.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is