Ljós streymir úr turni Fríkirkjunnar

Svona mun turn Fríkirkjunnar í Reykjavík líta út á Vetrarhátíð. stækka

Svona mun turn Fríkirkjunnar í Reykjavík líta út á Vetrarhátíð.

Á Vetrarhátíð í ár, dagana 9.-12 febrúar, munu hvítar ljósglærur streyma úr turni Fríkirkjunnar í Reykjavík. Fyrir ofan vegfarendur verður til sívalur viti ljóss. Innsetning mun lýsa vegfarendum dag og nótt í þrjá daga. Verkið er eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, en hún hefur nýlokið námi við Listaháskóla Íslands. Ljósameistari verksins er Jóhann Pálmi Bjarnason.

 Turnar hafa ávallt heillað Ragnheiði, segir í fréttatilkynningu. Það er eitthvað heillandi við turna, ævintýralegt, dularfullt og sérstakt, segir hún. 

„Vitar veita skipverjum á hafinu von í óveðri, en um leið standa þeir einsamlir og einangraðir. Í sögubókum bíður prinsessan í vita eftir hugrakka prinsinum til að bjarga henni. Þegar við keyrum eftir Borgartúni sjáum við tóman turn úr stáli og gleri, sem minnir okkur á hugsunarhátt nýliðins tíma. En horfum við nokkurn tímann upp á þá turna sem gnæfa yfir okkur í hversdeginum?“

 Nafnið á verkinu er dregið af turni sem byggður var í Alexandríu í Egyptalandi á tímum Rómaveldis. Hlutverk turnsins var að lýsa sjómönnum veginn heim í myrkri næturinnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is