LMFAO agndofa vegna Madonnu

Madonna fékk stjörnurnar í LMFAO til að svitna á meðan æfingar fyrir Ofurskálina, eða Super Bowl fóru fram. Rafdúettinn kom fram í hálfleik á úrslitaleiknum í ameríska fótboltanum og fluttu endurhljóðblandaða útgáfu af sínu vinsælasta lagi, Sexy and You Know It.  Poppdrottningin kom þar fram einnig og flutti 12 mínútna lagasyrpu.


Redfoo og SkyBlu, sem saman mynda LMFAO, segjast hafa stressast upp fyrir viðburðinn stóra út af söngkonunni. "Í hvert skipti sem hún kom á æfingar þá var ég... hendurnar svitnuðu, ég var bara, vá, Madonna" viðurkenndi SkyBlu við ET Online.


Redfoo var sammála um að það hafi verið frábær reynsla að vinna með svona alheims-ofurstjörnu. "Hún er ótrúleg," sagði hann. "Það var ótrúleg lífsreynsla að vinna með henni." 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is