Saknar fyrri tíma
Fjölmiðlar hafa síðustu vikur fjallað um meinta erfiðleika í sambandi Johnnys Depps og Vanessu Paradis og sumir hafa jafnvel fullyrt að þau séu skilin að skiptum. Söngkonan blés á orðróm þess efnis á dögunum en ver engu að síður æ meiri tíma með stórfjölskyldu sinni í Frakklandi, á meðan Depp gælir við gamlar, góðar minningar frá fyrri tíð þegar hann gat leyft sér að vera kærulaus.
Parið hóf ástarsamband fyrir um fjórtán árum en fram að því hafði leikarinn notið skemmtanalífsins út í ystu æsar og náðust oft ljósmyndir af honum í misgóðu ástandi. Depp róaðist þegar hann kynntist Paradis, fluttist með henni til Frakklands og eignaðist börn. En nú þegar erfiðleikar sambandsins eru komnir upp á yfirborðið horfir hann til fyrri tíma með eftirsjá.
Upptökur á nýjustu mynd Depps, The Rum Diary í leikstjórn Bruce Robinsons, fóru fram á síðasta ári og meðan á þeim stóð líktist leikarinn sjálfum sér eins og hann var fyrir sambandið við Paradis. Samkvæmt heimildamanni bresku útgáfu tímaritsins Grazia fékk Depp sér jafnan viskí í lok vinnudags og vakti lengi frameftir með vinnufélögunum. Leikaranum er mjög annt um Paradis og börnin og vill ekki særa þau en finnur þó að hann verður að hlusta á sína innri rödd og leyfa sér að vera hann sjálfur.









