Saknar hjónalífsins
Davíð Beckham er mjög ósáttur við hvað eiginkona hans Viktoría eyðir löngum stundum í vinnunni og segist varla sjá hana lengur. Síðasta hálfa árið hefur verið annasamt í lífi tískugyðjunnar. Hún er mikið á ferð og flugi og þegar hún stoppar heima er hún á kafi í barnauppeldi. Davíð er leiður og sár og finnst eiginkonan aldrei hafa tíma fyrir hann.
Viktoría er nú miður sín yfir því að hafa vanrækt eiginmanninn, að því er haft er eftir heimildamanni tímaritsins Closer sem þekkir vel til hjónanna. Fótboltakappinn er orðinn mjög þreyttur á ástandinu og saknar fyrri tíma. Viktoría hefur átt mikilli velgengni að fagna eftir að hún kynnti til sögunnar tískulínu sína og er í stöðugum ferðalögum á milli Los Angeles og London í tengslum við starfið. Þegar hún er heima hefur hún fullt í fangi með að sinna börnunum fjórum en yngsta dóttirin Harper Seven er aðeins sex mánaða gömul. Ef hún er ekki upptekin af börnunum er hún í símanum eða í tölvunni.
Viktoría hefur heitið sjálfri sér og eiginmanninum því að verja meiri tíma með honum og gæða hjónabandið nýju lífi. Hún hefur þó áhyggjur af Tískuvikunni í New York sem hefst síðar í víkunni, þar sem hún mun kynna haust- og vetrarlínuna 2012. Velti hún því alvarlega fyrir sér að senda aðra fyrir sig í þetta sinn út af ástandinu heima fyrir en samstarfsfólk hennar taldi hana á að mæta í eigin persónu.









