Segir Clegg „flengdan strák“
Breski leikarinn Daniel Radcliffe, sem þekktastur er fyrir að leika töframanninn Harry Potter í samnefndum kvikmyndum, er hættur stuðningi sínum við Frjálslynda demókrata í Bretlandi og ætlar þess í stað að styðja breska Verkamannaflokkinn. Fréttavefur breska dagblaðsins Daily Telegraph segir frá þessu í dag.
Radcliffe var ötull stuðningsmaður Frjálslyndra demókrata fyrir síðustu þingkosningar í Bretlandi vorið 2010. Hann segir hins vegar að eftir að flokkurinn fór í ríkisstjórn með íhaldsmönnum geti hann ekki stutt hann lengur.
„Nick Clegg [leiðtogi Frjálslyndra demókrata] er orðinn að flengdum strák. Hann hefur algerlega verið notaður af íhaldsmönnunum. Öllu sem þeir telja að líti illa út fyrir sig koma þeir yfir á hann,“ segir Radcliffe. „Þetta er mjög leiðinlegt í ljósi þess hversu vel hann kom fyrir í kosningabaráttunni. En hann hefur gert of margar málamiðlanir.“
Fyrir kosningarnar sagði Radcliffe meðal annars: „Mér líkar betur við Nick Clegg. Mér líkar ekki við þennan nýja Verkamannaflokk. Ég hef bara upplifað slæm ár undir hans stjórn.“









