Tilnefnd til Eyrarrósarinnar

Eyrarrósin er veitt í áttunda sinn í ár stækka

Eyrarrósin er veitt í áttunda sinn í ár mbl.is

Tilkynnt hefur verið um þau þrjú verkefni sem eru tilnefnd til Eyrarrósarinnar árið 2012. Eyrarrósin er sérstök viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni. Þetta er í áttunda sinn sem Eyrarrósin er veitt og mun athöfnin fara fram á Bessastöðum hinn 18. febrúar næstkomandi.

Verkefnin sem eru tilnefnd eru Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands, Sjóræningjahúsið á Vatneyri og tónlistarhátíðin Við Djúpið en þessi verkefni voru tilnefnd úr methópi umsækjenda. Handhafi Eyrarrósarinnar fyrir árið 2011 er Sumartónleikar í Skálholtskirkju.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands en markmið verðlaunanna er að stuðla að fjölbreyttum menningarviðburðum og listalífi á landsbyggðinni.

Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar og mun afhenda verðlaunin. Það verkefni sem hlýtur viðurkenninguna fær 1,5 milljónir króna, verðlaunagrip eftir myndhöggvarann Steinunni Þórarinsdóttur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is