200 ár frá fæðingu Dickens

Mynd 1 af 5
Dickens var iðinn við að sækja krána The George í London. Reuters

Því er fagnað um víða veröld í dag að 200 ár eru liðin frá fæðingu breska rithöfundarins Charles Dickens. Lagður var blómsveigur á gröf hans, sem er í  Westminster Abbey í London og götuveisla var haldin í Portsmouth sem er fæðingarbær skáldsins.

Karl Bretaprins og leikarinn Ralph Fiennes, sem leikur í kvikmynd, sem gerð var eftir Glæstum vonum, Great Expectations, einu af verkum skáldsins, voru við athöfn við gröf Dickens í morgun.

Þar voru einnig fjölmargir afkomendur Dickens og ýmist frammáfólk í listum og menningu.

Claire Tomalin, sem hefur ritað ævisögu Dickens, segir að hann hafi búið yfir óviðjafnanlegum hæfileikum. „Næst á eftir Shakespeare var hann færastur allra í persónusköpun. Hann vildi sýna fram á að venjulegt alþýðufólk gæti verið jafn áhugavert og efnað og frægt fyrirfólk. Honum tókst það og svo var hann fyndinn, hann fékk fólk til að hlæja.“

Auk þess að skrifa fjölda bóka og blaðagreina kom Dickens á fót húsi fyrir „fallnar konur“ þar sem vændiskonum var gefinn kostur á að hefja nýtt líf. Markmiðið var að fá þær til að flytjast til Ástralíu, þar sem þær gætu fengið vinnu og stofnað sína eigin fjölskyldu.

Að auki gaf Dickens sér tíma til að eignast tíu börn og þegar frægð hann jókst, fór hann í fyrirlestrarferðir til Bandaríkjanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is