Antoni Tápies látinn

Spænski listamaðurinn Antoni Tápies stækka

Spænski listamaðurinn Antoni Tápies Af vef Wikipedia

Spænski listamaðurinn Antoni Tápies lést í Barcelona í gærkvöldi, 88 ára að aldri. Tápies var einn þekktasti samtímalistamaður í Evrópu.

Samkvæmt fréttum spænskra fjölmiðla hafði Tápies verið veikur í talsverðan tíma.

Tápies var meðal annars valinn besti listamaður tuttugustu aldarinnar af spænska dagblaðinu El Mundo en verk Tápies eru þekkt um allan heim. Meðal listamanna sem hann var í miklu sambandi við í upphafi ferils síns eru Joan Miro og Salvador Dali sem einnig voru frá Katalóníu.

Tápies er einn þeirra fjölmörgu sem börðust gegn ofríki Franciscos Francos einræðisherra og sat meðal annars í fangelsi fyrir skoðanir sínar. Árið 2010 var hann heiðraður af Jóhanni Karli Spánarkonungi fyrir störf sín.

Hér er hægt að skoða nokkur verk Tápies

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is