Axlar-Björn á Theatre-Biennale
Leiksýning Vesturports, Axlar-Björn, hefur verið valin til að taka þátt í Theatre-Biennale hátíðinni, sem fram fer í Wiesbaden í Þýskalandi 14.-24. júní næstkomandi.
Rakel Garðarsdóttir hjá Vesturporti segir að sérstakur útsendari hafi komið til Íslands að skoða verk, og hafi valið Axlar-Björn. Sé þetta mikill heiður og hátíðin frábær.
Á vefsvæði Borgarleikhússins segir um sýninguna, að í henni sé sögð saga eins kaldrifjaðasta morðingja Íslandssögunnar, og hún velti meðal annars upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiði til óhæfuverka.
Höfundur verksins er Björn Hlynur Haraldsson sem einnig leikstýrir. Á umræddu vefsvæði segir að Björn Hlynur hafi getið sér gott orð bæði sem höfundur og leikstjóri, hann skrifaði t.a.m. leikritið Dubbeldusch auk þess að skrifa leikgerð Faust og Húsmóðurina ásamt félögum sínum í Vesturporti.
Kjartan Sveinsson úr Sigurrós undirstrikar óhugnaðinn með tónlist og hljóðmynd.









