Börnin pakka sjálf ofan í tösku
Brad Pitt og Angelina Jolie með tvö af börnunum, Maddox og Zahara. Reuters
Brad Pitt og Angelina Jolie eru á stöðugum ferðalögum um heiminn, ýmist tengt vinnu eða góðgerðarmálum, og oftast fylgir barnahópurinn með. Leikarahjónunum er mikið í mun að börnin sex verði sjálfstæð og þroskuð og því eru þau sjálf látin pakka ofan í ferðatöskur og bera ábyrgð á því að týna engu á heimshornaflakkinu.
Pitt var gestur í morgunþætti CBS-sjónvarpsstöðvarinnar á mánudag og vék þar talinu að þétt skipulagðri ferðadagskrá fjölskyldunnar. „Börnin okkar eru alvön að ferðast og finna til þotuþreytu, þeim er alveg sama þó að við séum alltaf á flakki svo lengi sem við erum öll saman,“ sagði Pitt í sjónvarpsviðtalinu og bætti við: „Við látum þau pakka sjálf ofan í sínar ferðatöskur og bera ábyrgð á að týna engu. Ef þau gleyma einhverju á hótelherbergi þá er það þeirra mál.“
Börn Jolie og Pitt eru Maddox tíu ára, Pax átta ára, Zahara sjö ára, Shiloh fimm ára og tvíburarnir Knox og Vivienne þriggja ára. Orðrómur er á kreiki um að Jolie eigi von á þeirra sjöunda barni en væntanlega kemur brátt í ljós hvort sögusagnirnar eiga við rök að styðjast










