Contraband víkur fyrir Chronicle
Kvikmynd leikstjórans Josh Tranks, Chronicle, sem fjallar um þrjá unglinga sem öðlast yfirnáttúrulega krafta eftir að hafa farið niður um holu í skógi nokkrum, er komin á topp aðsóknarlistans á Íslandi. Í þessari stórskemmtilegu mynd kljást unglingarnir við vináttuna, ábyrgðarleysi, kæruleysi og önnur vandamál sem fylgja þeim yfirnáttúrulega krafti sem þeim hefur hlotnast. Myndin slær út kvikmynd Baltasars Kormáks sem sat tvær vikur í röð á toppi bíólistans en þarf nú að sætta sig við annað sætið. Varla þarf að kynna mynd hans frekar enda er þessi stórmynd Baltasars flestum Íslendingum kunn. Í þriðja sæti listans er myndin The Grey en þar leiðir stórleikarinn Liam Neeson áhorfendur um óbyggðir Alaska eftir að flugvél með olíuverkamönnum hrapar og þarf hópurinn að kljást við náttúruna og sjálfan sig.
Myndin One For The Money kemur ný inn í fjóða sætið á bíólistanum í þessari viku en Katherine Heigl, Jason O'Mara, Daniel Sunjata og fleiri góðir leikarar leika í þessari skemmtilegu rómantísku gamanmynd.









