Erfiður kærasti

Daniel Radcliffe. stækka

Daniel Radcliffe. LUCAS JACKSON

Daniel Radcliffe, aðalstjarnan úr myndunum um Harry Potter, er ánægður með nýju kærustuna en segir hana grunlausa um hvað bíði hennar. Hann sé erfiður og oft ekki nógu tillitssamur, tali of mikið, gangi illa um og fái ákveðna hluti gjörsamlega á heilann.

Leikarinn á í sambandi við Rosie Coker en hún starfar við kvikmyndaframleiðslu. Í viðtali við breska dagblaðið Daily Mirror opnar Radcliffe sig um ástamálin. „Rosie er yndisleg manneskja en alltof góð fyrir mig,“ segir hann. „Hún hefur þolinmæði til að hlusta á mig þegar ég get ekki hætt að tala og elskar hvað ég get stundum verið skrítinn. Henni finnst það bara krúttlegt, ég býst við að það sé merki um ást.“

Radcliffe er nú á kynningarferðalagi vegna nýjustu myndar sinnar, spennumyndarinnar The Woman in Black. Hann sér fram á að vera að heiman á Valentínusardag en ætlar að bæta kærustunni það upp síðar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is