Gekk fram af Madonnu

Mynd 1 af 3
Madonna og LMFAO mbl.is/Covermedia

Madonna er reið út í bresku poppstjörnuna M.I.A. sem sýndi áhorfendum óvænt fingurinn í hálfleik Super Bowl, lokaleik NLF-deildarinnar í ameríska fótboltanum sem fram fór á sunnudag. M.I.A. kom fram með stórstjörnunni ásamt Nicki Minaj og tókst söngkonunni óvænt að stela senunni, Madonnu til mikillar gremju.

Uppátæki M.I.A. hefur mælst afar illa fyrir, svo sem meðal íhaldssamra Bandaríkjamanna, og tókst henni að ganga fram af Madonnu sem kallar nú ekki allt ömmu sína þegar kemur að sviðsframkomu. Stjórnendur Super Bowl hafa beðist afsökurnar á dónalegu og vanhugsuðu uppátæki M.I.A. og að sögn heimildamanns breska dagblaðsins Sun er Madonna öskureið út í söngkonuna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is