Gói og Þröstur Leó með nýja barnasýningu

Þröstur Leó og Gói fara með aðalhlutverkin í Góa og Baunagrasinu sem frumsýnt verður á ... stækka

Þröstur Leó og Gói fara með aðalhlutverkin í Góa og Baunagrasinu sem frumsýnt verður á laugardaginn í Borgarleikhúsinu.

Gói og ævintýrið um Baunagrasið verður frumsýnt á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu laugardaginn 11. febrúar. Með aðalhlutverk fara Guðjón Davíð Karlsson og Þröstur Leó Gunnarsson en þeir slógu eftirminnilega í gegn í sýningunni Eldfærunum sem sýnd var í fyrra.

Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum, og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta þeir til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna. Fyrst komu Eldfærin – nú er það Baunagrasið. Eldfærin hlutu tvær tilnefningar til Grímunnar á síðasta ári, sem áhorfendasýning ársins og barnasýning ársins. Gói og Þröstur halda nú áfram að kafa í gömlu ævintýrin og blása í þau nýju lífi á leiksviðinu. Risinn, gamla konan, fallega ríka stelpan, sjálfspilandi harpan, hænan sem verpir gulleggjum og allir þorpsbúarnir mæta til leiks á litla sviði Borgarleikhússins. Gói leikur Jóa og Þröstur sér um rest.

Guðjón Davíð Karlsson gerði leikgerðina en leikmynd og búningar eru í höndum Rannveigar Evu Karlsdóttur. Vignir Snær Vigfússon sér um tónlistina ásamt Guðjóni Davíð Karlssyni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is