Hittu þinn eina rétta hund
Það eiga ekki allir samleið, en með aðstoð getur fólk fundið hið fullkomna gæludýr sem passar við skapgerð þess og persónuleika. Félagasamtök sem þetta stunda í Bandaríkjunum hafa bjargað mörgum hvuttanum frá dauða með aðferðum sínum.
Samtökin kalla sig Meet Your Match, eða Hittu þinn eina rétta og hafa aðstoðað dýraverndunarsamtök í Los Angeles við að finna heimili handa köttum og hundum. Frá árinu 2008 hefur þessi samvinna skilað þeim árangri að tæplega 3.000 hundar og kettir hafa fengið heimili. Og mun minna er um að fólk skili dýrunum aftur í athvarfið. Hittu þinn eina rétta er uppfinning Emily Weiss sem starfar með dýraverndunarsamtökum í Los Angeles.
Fólk sem vill fá dýr úr athvörfum er beðið um að svara 19 spurningum, m.a. um hvort það vilji leikglaðan eða rólegan hund o.s.frv. Einnig er fólk beðið að svara því hvort dýrið þurfi að vera mikið eitt heima og hverjir á heimilinu muni sjá um það.
Og könnun er gerð á hegðun dýranna. Þau eru m.a. sett ein inn í herbergi og fylgst með því hversu fljótt þau róast eða hvað þau taka til bragðs.
Oft er fólk aðeins búið að ákveða hvernig gæludýrið eigi að líta út en ekki hvernig persónuleika það eigi að hafa.









