Hvalir höfða mál gegn sædýrasafni

Lögmaður háhyrninganna segir að brotið sé á réttindum þeirra. stækka

Lögmaður háhyrninganna segir að brotið sé á réttindum þeirra. STR

Fimm háhyrningar sem dvelja í sædýrasafninu SeaWorld í Kaliforníu og Flórída hafa höfðað mál gegn garðinum þar sem þeir krefjast þess að fá að njóta sömu stjórnarskrárlegu réttinda og menn. Lögmaður hvalanna telur að hvalirnir séu meðhöndlaðir eins og þrælar.

Það eru samtökin People for the Ethical Treatment of Animals (Peta) sem höfða málið. Dómari í San Diego hefur ákveðið að hlusta á rök lögmanns hvalanna. Theodore Shaw, lögmaður SeaWorld, segir dómsmálið sóun á tíma og peningum dómstólsins. Hann bendir á að stjórnarskrá Bandaríkjanna hafi ekki verið samin með hvali eða önnur dýr í huga enda sé þar sérstaklega talað um réttindi manna. Hann segir að ef tekið sé tillit til þessara krafna myndi það ekki aðeins hafa áhrif á rekstur dýragarða heldur einnig á notkun á fíkniefnahundum og fleira.

Peta segir að hvalir séu meðhöndlaðir eins og þrælar og þeir séu þvingaðir til að búa í þröngum búrum. Lögmaður þeirra vísar í málflutningi sínum til ákvæðis stjórnarskrár Bandaríkjanna um bann við þrælahaldi og óbeinni nauðungarvinnu.

Ólíklegt er talið að samtökunum takist að vinna þetta mál, en félagar í samtökunum telja það sigur að hlustað sé á sjónarmið þeirra í réttarsal.

Fram kemur í frétt á BBC að hvalirnir sem höfða málið séu Tilikum og Katina sem eru í SeaWorld Orlando á Flórída og Kasatka, Corky, og Ulises, sem eru í SeaWorld í San Diego.

Ekki er langt síðan Tilikum komst í fréttirnar þegar hann drap starfsmann sædýrasafnsins. Fjöldi manns horfði á þegar starfsmaðurinn lést, en það gerðist á sýningu. Sami háhyrningur er einnig grunaður um að tengjast dauða tveggja annarra manna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is