Madonna í heimsreisu

Mynd 1 af 4
Madonna skemmti áhorfendum í leikhléi í úrslitaleik NFL-deildarinnar og þótti standa sig með prýði. Reuters

Bandaríska poppsöngkonan Madonna ætlar að fara í hljómleikaferðalag um heiminn en það mun hefjast í Tel Aviv í Ísrael í maí. Þetta segir skipuleggjandi tónleikaferðalagsins. Madonna mun gera víðreist í Evrópu og í Bandaríkjunum áður en hún heimsækir Ástralíu í fyrsta sinn í 20 ár.

Madonna þótti standa sig vel þegar hún skemmti áhorfendum í hálfleik í úrslitaleiknum um bandarísku Ofurskálina, sem fram fór á sunnudag. Þar kom hún fram með rapparanum M.I.A sem olli miklu fjaðrafoki þegar hún sendi áhorfendunum löngutöngina.

Live Nation Entertainment, sem skipuleggur tónleikaferðalagið, segir að Madonna standi fyrir meiriháttar skemmtun og að öllum sé boðið. Hljómleikaferðalagið hefjist 29. maí í Tel Aviv. Þetta er í níunda sinn sem Madonna fer í tónleikaferðalag um heiminn.

Síðasta ferðalag hennar umhverfis hnöttinn hófst árið 2008 og lauk 2009, en það tónleikaferðlag nefndist „Sticky and Sweet“ og þótti ganga mjög vel. Að þessu sinni mun Madonna fylgja eftir nýjstu breiðskífu sinni sem nefnist MDNA og er væntanleg í mars.

Madonna, sem er 53 ára gömul, hefur verið kölluð poppdrottning og ekki að ástæðulausu. Hún hefur selt rúmlega 300 milljónir platna og unnið sjö Grammy-verðlaun á ferlinum, sem spannar rúma þrjá áratugi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is