Roðnaði undan eigin kynþokka

Beckham kynþokkafullur í nýrri undirfataauglýsingu H&M. stækka

Beckham kynþokkafullur í nýrri undirfataauglýsingu H&M. PAUL HACKETT

Davíð Beckham eldroðnaði og fór hjá sér þegar hann sá skyndilega sjálfan sig á nærbuxunum í kynþokkafullri sjónvarpsauglýsingu frá H&M. Beckham fylgdist með Super Bowl, úrslitaleik NLF-deildarinnar í amerískum fótbolta, ásamt fjölskyldu og stórum vinahópi og kom fát á kappann þegar nærbuxnaauglýsingin rann yfir skjáinn.

Knattspyrnugoðið skýrði Ryan Seacrest frá þessu neyðarlega atviki í bandaríska útvarpsþættinum Z100. Sagðist hann hafa horft á úrslitaleikinn ásamt 20 öðrum, vinum og fjölskyldu, og farið í flækju þegar undirfataauglýsingin birtist í hléi.

Kvaðst Beckham vera feiminn að eðlisfari og því hefði uppákoman verið mjög óþægileg. Honum hefði ekki liðið illa í auglýsingamyndatökunum fyrir nýju undirfatalínuna sína því þá hefðu sárafáir verið viðstaddir en að sjá sjálfan sig á skjánum innan um allt þetta fólk hefði verið of mikið af því góða. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is