|
Monitor
| Cover Media
| 7.2.2012
| 21:37
| Uppfært
21:53
Ryan Gosling og Eva Mendes í Bankok
Eva Mendes og Ryan Gosling hafa að undanförnu verið dugleg við að fara á rómantísk stefnumót í Bankok. Leikkonan fagra er þar stödd í augnablikinu til að heimsækja leikarann á tökustað en tökur á myndinni Only God Forgives fara fram í borginni. Ryan er duglegur við að nýta frítíma sinn frá tökum í rómantískar ferðir.
"Þau gengu hönd í hönd inn á japanska veitingastaðinn Nippon Kai þar sem þau borðuðu kvöldverð 2. febrúar," sagði vitni við bandaríska tímaritið Life & Style. "Þau höfðu hljótt um sig og allir létu þau í friði. Eva er enn fallegri í eigin persónu."
Annað vitni sagðist hafa séð þau eiga lágstemmt kvöld í bíó. Turtildúfurnar náðu að tylla sér niður í Paragon Cineplex-kvikmyndahúsinu og réðu túlk til að ganga úr skugga um að skilja allt sem gekk á í myndinni.
"Það voru rosalega margir þarna en það virtist vera eins og þau væru með túlk með sér. Þau reyndu ekki að fela sig. Ryan var í stuttermabol og gallabuxum en Eva var í hvítum kjól," sagði heimildarmaðurinn.
Við annað tækifæri bauð Ryan Evu upp á drykk á bar sem ber nafnið WTF bar and gallery. Þeir sem sáu til þeirra voru hissa hversu jarðbundin þau voru.
"Þau gengu inn án þess að vera með læti. Eva sötraði Red Bull en Ryan fékk sér tequila. Þau spjölluðu um heimildamyndir," sagði vitni.
Eva og Ryan hafa ruglað saman reitum síðan á síðasta ári en þau urðu mjög náin við gerð myndarinnar The Place Beyond The Pines.
Heimildamenn segja Ryan vera yfir sig ástfanginn og í raun "heltekinn" af henni.









