Síðust eftirlifandi hermanna úr fyrra stríði
Florence Green starfaði í mötuneyti breska flughersins. Reuters
Kona sem talið er að hafi verið elsti eftirlifandi einstaklingurinn í heiminum sem gegndi herþjónustu á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar er látin 110 ára að aldri.
Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að Florence Green frá Norfolk hafi starfað í mötuneyti breska flughersins í Marham og Narborough. Hún var 17 ára þegar hún gekk til liðs við kvennadeild flughersins þann 13. september árið 1918, eða tveimur mánuðum áður en samið var um vopnahlé.
Hún andaðist í svefni sl. laugardagskvöld á hjúkrunarheimili í King's Lynn. Hún hefði orðið 111 ára 19. febrúar nk.
Claude Choules, sem var elsti maðurinn á lífi sem barðist í fyrra stríði, lést í Ástralíu í maí í fyrra. Hann var einnig 110 ára.









