Þóttist vera látinn listamaður
Lögregla í Suður-Afríku hefur enn í haldi karlmann sem þóttist vera frægur tónlistarmaður sem lést árið 2009. Upplýst hefur verið um nafn svikarans sem olli töluverðu uppnámi meðal aðdáenda tónlistarmannsins.
Málið hófst á því að svikarinn, Sibusiso John Gcabashe, kom að heimili tónlistarmannsins Khulekani Khumalo, eða „Mgqumeni“ eins og hann er betur þekktur, fyrir helgi. Heimilið er í þorpinu Nqutu í austurhluta landsins.
Fréttir af því að tónlistarmaðurinn væri enn á lífi breiddust hratt út og aðdáendur Mgqumeni flykktust til þorpsins. Maðurinn hélt því fram að hann hefði orðið göldrum að bráð og verið milli heims og helju frá árinu 2009.
Maðurinn var færður til skýrslutöku hjá lögreglu í gær eftir að hafa ávarpað aðdáendur sína opinberlega. Hann var svo færður fyrir dómara í dag. Var þá upplýst um rétt nafn mannsins. Hann hefur engar skýringar gefið á því hvers vegna hann tók sér nafn tónlistarmannsins. Mál hans verður næst tekið fyrir 14. febrúar.
Eftirlifandi eiginkona Mgqumeni hefur gefið út yfirlýsingu vegna málsins þar sem hún fordæmir hegðun Gcabashe og fer fram á að hann verði dæmdur til fangelsisvistar.
Mgqumeni hefur unnið til fjölmargra verðlauna í heimalandi sínu fyrir tónlist sína. Að neðan getur að líta myndband af viðtökunum sem Gcabashe fékk í heimabæ Mgqumeni, og viðtali við hann fyrir handtöku.









