Tók ekki við 12 milljarða starfslokagreiðslu
Fyrrverandi forstjóri Nabor Industries, sem sérhæfir sig í olíuborun, neitaði að taka við 100 milljóna dala (um 12,4 milljarðar kr.) starfslokagreiðslu eftir að kvartanir bárust frá hluthöfum fyrirtækisins um að fjárhæðin væri allt of há.
Eugene Isenberg lét af störfum sem forstjóri sl. október en er enn stjórnarformaður fyrirtækisins. Í tilkynningu frá Nabor Industries segir að hann hafi „af fúsum vilja“ hætt við að taka við greiðslunni. Hún var hluti af samkomulagi sem hann gerði við fyrirtækið en samkvæmt því átti hann rétt á þessari upphæð þegar hann léti af störfum.
Isenberg, sem er 82 ára gamall, neitaði einnig að taka við sjö milljón dala kaupaukagreiðslu sem hafði verið frestað. Samtals hefði upphæðin numið 13% af hreinum hagnaði fyrirtækisins árið 2010. Árið 2009 skilaði fyrirtækið hins vegar 86 milljóna dala tapi.
Hluthafar í fyrirtækinu voru ósáttir við þetta fyrirkomulag. Ef þetta hefði gengið í gegn hefði það verið einn dýrasti starfslokasamningur í sögu Bandaríkjanna.









