Verk Taylor fóru á 2,7 milljarða

Verk Elísabetar Taylor eftir Vincent Van Gogh var slegið á tæpa tvo milljarða króna. stækka

Verk Elísabetar Taylor eftir Vincent Van Gogh var slegið á tæpa tvo milljarða króna. Reuters

Þrjú listaverk úr safni leikkonunnar Elizabeth Taylor voru boðin upp hjá uppboðshúsinu Christie's í dag. Fóru verkin á um samtals 14 milljónir punda eða rúmlega 2,7 milljarða íslenskra króna.

Uppboðshaldarar segja að eitt verkanna, „Vue de l'asile de la Chapelle de Remy“ eftir Vincent van Gogh hafi verið slegið á tæpa tvo milljarða króna. Verkið hafði leikkonan hangandi á stofuvegg á heimili sínu í Bel Air. Þá seldust einnig verk úr safni Taylor eftir Edgar Degas og Camille Pissarro.

Stjórnarformaður uppboðshússins segir verkin þrjú djásnin í krúnu listaverkasafns leikkonunnar.

Elizabeth Taylor lést í mars á síðasta ári, 79 ára að aldri.

Skartgripir og föt leikkonunnar Elísabetar Taylor voru boðin upp í desember.

Skartgripir og föt leikkonunnar Elísabetar Taylor voru boðin upp í desember. Reuteres

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is