Veröld/Fólk
| Cover Media
| 8.2.2012
| 11:22
| Uppfært
11:55
Á þrjá nána vini
Miðað við frægð Davíðs Beckhams og frama og gríðarleg tengsl hans, bæði innan knattspyrnunnar og tísku- og kvikmyndaheimsins, hefði mátt ætla að vinahópurinn væri umtalsvert stærri en gengur og gerist. En það er alls ekki svo, Beckham á aðeins þrjá nána vini.
Stjarna fótboltaliðsins L.A. Galaxy opnar sig um málið í nýju viðtali við tímaritið Men's Health. Þar segist knattspyrnugoðið eiga lítinn vinahóp og þannig vilji hann hafa það. „Fjölskyldan er mér mikilvægust og mun alltaf verða,“ segir Beckham. „Ég á konu og fjögur börn, foreldra, afa og ömmu enn á lífi og þrjá vini sem ég er mjög nákominn. Það er allt sem maður þarf. Ég myndi frekar vilja eiga þrjá mjög góða vini en 20 góða.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









