Ásælist ekki auðæfi Katy Perry

Russell Brand og Katy Perry á meðan þau voru enn hjón. stækka

Russell Brand og Katy Perry á meðan þau voru enn hjón. DANNY MOLOSHOK

Russell Brand hefur sem kunnugt er óskað eftir skilnaði við Katy Perry og sendi frá sér síðustu pappíra þar að lútandi á þriðjudag. Skilnaðarskilmálar hans eru mjög einfaldir: Hann vill ekki krónu af auðæfum Perry.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðunni TMZ gerðu hjónin fyrrverandi ekki með sér hjúskaparsáttmála og því á breski uppistandarinn rétt á helmingi auðæfa Perry, eða um 20 milljónum Bandaríkjadala.

Brand hefur aftur á móti engan áhuga á peningum hennar og hefur ekki aðrar óskir en að skilnaðurinn verði átakalaus en hann mun væntanlega ganga í gegn í lok júní.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is