Denzel Washington í mynd Baltasars?
Útlit er fyrir Denzel Washington muni lúta leikstjórn Baltasars Kormáks í næstu Hollywood-mynd hans, en óskarsverðlaunahafinn á nú í viðræðum við framleiðslufyrirtæki Marks Wahlbergs um að leika í kvikmyndinni 2 Guns.
Kvikmyndin er á þróunarstigi hjá Universal kvikmyndaverinu. Baltasar hafði gefið til kynna að hann væri í viðræðum við „mjög stórt nafn“ í Hollywood án þess að segja hver það væri en svo virðist sem það sé stórstjarnan Denzel Washington, sem hefur í tvígang hlotið Óskarsverðlaun fyrir leik sinn.
Baltasar mun hafa fengið holskeflu tilboða yfir sig síðustu vikurnar en kvikmyndavefurinn Filmophilia leiðir líkum að því að 2 Guns sé efst á lista þar sem vinna við hana virðist komin lengst af stað. Nafn Baltasars hefur þó einnig verið nefnt í tengslum við kvikmyndina Everest sem Universal er einnig með á sínum snærum.
Ef af verður mun þetta verða fyrsta skipti sem þeir Denzel Washington og Mark Wahlberg leiða saman hesta sína í kvikmynd og þykir kvikmyndaáhugamönnum ljóst að 2 Guns verði því sú spennumynd sem beðið verður með einna mestri eftirvæntingu árið 2013.









