Fyrstu tónleikar Sigur Rósar í fjögur ár

Sigur Rós í Laugardalshöllinni. stækka

Sigur Rós í Laugardalshöllinni. mbl.is/hag

Sigur Rós ætlar að koma fram á tónlistarhátíðinni Bestival á Englandi í september og eru þetta fyrstu tónleikar sveitarinnar í næstum fjögur ár, segir á vefnum Concequence of Sound.

Tónlistarhátíðin Bestival fer fram dagana 6.-9. september næstkomandi og þar koma m.a. fram The xx, Justice, Hot Chip, Spiritualized, Orbital, Major Lazer, The Horrors, Gary Numan, Azealia Banks og Warpaint.

Ný plata frá Sigur Rós er væntanleg á þessu ári.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is