Glæpamennirnir halda sig inni
Mikið kuldakast hefur verið í Serbíu að undanförnu með tilheyrandi snjóþunga. Veðrið hefur ekki aðeins haft áhrif á líf almennra borgara því glæpamenn hafa haft frekar hægt um sig í vetrarfærðinni. Ríkisstjórn landsins hefur greint frá því að glæpatíðnin hafi dregist saman um 40% að undanförnu.
„Þrátt fyrir alvarlegt ástand þá hefur eitthvað gott komið út úr þessu; glæpatíðni á landsvísu hefur dregist saman,“ segir Ivica Dacic, innanríkisráðherra Serbíu.
„Frá því kuldakastið hófst þá hefur enginn tilkynning borist um bílþjófnað,“ bætti hann við.
Frostið hefur farið niður í 20 stig og hefur kuldinn tekið sinn toll. Alls hafa 12 látist í frosthörkunum frá því í síðustu viku. Þá er víða mikill snjóþungi og hafa þúsundir þorpsbúa hvorki komist aftur á bak né áfram í færðinni.









