Komin með nýjan kærasta
Sandra Bullock leitar ekki langt yfir skammt í karlamálunum, ef marka má nýjasta orðróminn í Hollywood. Undanfarið hefur hún sést í fylgd með nánum vini leikarans Ryans Reynolds en sá heitir Jonathon Komack Martin og er kvikmyndaframleiðandi.
Bullock og Reynolds hafa aldrei viðurkennt opinberlega að hafa verið saman og segjast aðeins vera mjög góðir vinir en ýmsir halda öðru fram og fullyrða að þau hafi átt í nokkrum stuttum ástarsamböndum. Bullock hefur undanfarið sést í fylgd Martins sem er náinn vinur Reynolds og komið af stað sögusögnum um að þau séu nýtt par.
Samkvæmt heimildamanni tímaritsins OK! kynntust leikkonan og kvikmyndaframleiðandinn fyrir nokkrum árum og náðu strax mjög vel saman. Þau hafa allar götur síðan verið góðir vinir en undanfarið sést saman opinberlega, ýmist tvö ein eða á mannamótum. Vinir Bullocks vona að hún sé nú búin að finna ástina á ný, eftir sársaukafullan skilnað við Jesse James árið 2010.










