Kutcher vill framlög frá aðdáendum
Bandarískir leikarinn Ashton Kutcher hefur farið fram á það við aðdáendur sína, að þeir leggi fé í söfnun hans gegn ofbeldi á börnum í tilefni af afmæli hans, en Kutcher varð 34 ára í gær. Hann heitir því að tvöfalda upphæðina sem safnast, allt að 350 þúsund bandaríkjadali, jafnvirði 42 milljóna króna.
Annars er það að frétta af fræga fólkinu í Hollywood, að Angelina Jolie mun afhenda verðlaun á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer síðar í þessum mánuði. Jolie er sjálf ekki tilnefnd til verðlauna í ár en unnusti hennar, Brad Pitt, gæti hreppt verðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Moneyball.
Þá eignuðust leikarinn Robert Downey Jr. og Susan, eiginkona hans, son í gær sem fengið hefur nafnið Exton Elias Downey. Fyrir á Downey Jr. átján ára son af fyrra hjónabandi.









