Létu drenginn hlaupa um hálfberan

Foreldrar drengsins neyddu hann tll að hlaupa um hálfnakinn í snjónum og töldu það herða ... stækka

Foreldrar drengsins neyddu hann tll að hlaupa um hálfnakinn í snjónum og töldu það herða hann. www.mbl.is

Upptaka sem sýnir fjögurra ára gamlan kínverskan dreng, sem neyddur var af foreldrum sínum til að hlaupa nakinn um snævi þakta götu í New York hefur vakið hörð viðbrögð. Nístingskuldi var þegar upptakan var gerð.

Drengurinn er sýndur hlaupa í gegnum snjóskafla til föður síns, sem heldur á myndatökuvélinni. Barnið er eingöngu klætt í skó og nærbuxur, það grætur sárt og sárbiður föður sinn um að taka sig í fangið.

Foreldrarnir heyrast nokkrum sinnum segja drengnum að leggjast niður í snjóinn og hann lætur að lokum undan.

Tilgangur athæfisins mun hafa verið að „herða piltinn“ og gera hann sterkan og heilbrigðan. Hann mun hafa fæðst fyrir tímann og vera fremur heilsuveill.

Þetta þykir minna um margt á umræðu um kínverska uppeldishætti, sem nokkuð hafa verið ræddir vestanhafs, sér í lagi eftir útkomu bókarinnar „Tiger Mother“ eftir Amy Chua, þar sem ströngu kínversku uppeldi er lýst.

Fólkið, sem kemur frá borginni Nanjing í austurhluta Kína, var í fríi í Bandaríkjunum þegar upptakan var gerð.

Reglur um að mega einungis eiga eitt barn hafa gert það að verkum að nú er til kynslóð kínverskra einkabarna sem eru spillt og dekruð. En á sama tíma eru oft á tíðum gerðar óhóflegar kröfur til barnanna um að þau standi sig vel í námi og tómstundum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is