Lögreglumaður í leit að sjálfum sér

Eftirlitsmyndavélar geta verið gagnlegar.

Eftirlitsmyndavélar geta verið gagnlegar. mbl.is/Ásdís

Breska lögreglan notast mikið við eftirlitsmyndavélar við störf sín. Á dögunum varð lögreglumaður sem var að fylgjast með skjánum var við grunsamlegan mann. Lögreglumaðurinn hafði samband við lögreglumann sem var nálægur og bað hann um að svipast um eftir grunsamlega manninum. Leitin tók enda eftir um 20 mínútur þegar lögreglumaðurinn áttaði sig á að hann var að leita að sjálfum sér.

Lögreglumaðurinn sem leitaði að „grunsamlega manninum“ var borgaralega klæddur. Lögreglumaðurinn sem fylgdist með eftirlitsmyndavélunum var nýr í starfi og tók starf sitt alvarlega. Hann brást því strax við þegar hann kom auga á mann sem hagaði sér grunsamlega.

Lögreglumaðurinn sem leitaði að sjálfum sér mun hafa skellt upp úr þegar hann áttaði sig á hvað hann hafði verið að gera í 20 mínútur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is