Luis Alberto Spinetta látinn

Luis Alberto Spinetta stækka

Luis Alberto Spinetta Ljósmynd/spinettacual.com.ar

Argentínski tónlistarmaðurinn Luis Alberto Spinetta lést í dag, miðvikudag, á heimili sínu. Banamein Spinetta var lungnakrabbamein, hann var 62 ára.

Spinetta var afar dáður í heimalandinu og lék með meðal annars með hljómsveitunum Almendra og Pescado Rabioso. Hann samdi bæði lög og texta auk þess að yrkja ljóð.

Börn Spinetta sendu frá sér tilkynningu um að hann hefði látist í faðmi fjölskyldunnar.

Að neðan má heyra eitt frægasta lag Spinetta, Barro Tal Vez.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is