Prinsinn keypti ólöglega mykju

Jóakim prins og eiginkona hans hin franska Marie Cavallier.

Jóakim prins og eiginkona hans hin franska Marie Cavallier. AP

Jóakim Danaprins, yngri sonur Margrétar Danadrottningar, blandast á óvæntan hátt inn í svikamál sem tengist áburði til notkunar í landbúnaði. Prinsinn mun hafa keypt áburð sem var fluttur inn á ólöglegan hátt og notað hann við landbúnað á landareign sinni.

Jóakim er með lífrænan búskap á Schackenborgarlandareign og þykir málið því hið vandræðalegasta, en þessi áburður mun vera án tilskilinnar umhverfisvottunar.

Í frétt vefsíðu danska dagblaðsins Politiken segir að sölumaður áburðarins hafi selt ólöglegan áburð fyrir um 20 milljónir danskra króna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is