Veröld/Fólk
| AP
| 8.2.2012
| 21:31
Schwarzenegger og Stallone saman í kvikmynd
Leikararnir Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone munu leiða saman hesta sína í spennumyndinni The Tomb. Þetta tilkynntu framleiðendur myndarinnar í dag.
Í The Tomb leikur Schwarzenegger tukthúslim sem freistar þess að strjúka úr rammgerðu fangelsi. Stallone er hönnuður fangelsisins sem lendir í þeirri aðstöðu að þurfa að brjótast út úr sínu eigin fangelsi.
Myndinni verður leikstýrt af Mikael Hafstrom og hefjast tökur á henni í Louisiana í vor.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









