Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 8.2.2012
| 5:30
| Uppfært
6:00
Sívalur viti ljóss lýsir vegfarendum
Á Vetrarhátíð 2012 sem hefst á morgun munu hvítar ljósglærur streyma úr turni Fríkirkjunnar í Reykjavík og verður þannig sívalur viti ljóss til fyrir ofan vegfarendur.
Um er að ræða innsetningu eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur en verkið, sem nefnist Pharos, mun lýsa vegfarendum dag og nótt í þrjá daga. Um þetta er nánar fjallað í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









