Svarar íhaldssömum mæðrum fullum hálsi

Ellen DeGeneres lætur fordóma annarra ekki setja sig út af laginu. stækka

Ellen DeGeneres lætur fordóma annarra ekki setja sig út af laginu. AP

Ellen DeGeneres svarar fullum hálsi samtökum íhaldssamra mæðra í Bandaríkjunum, sem segja hana óhæfa í hlutverk talsmanns verslunarrisans JC Penney sökum þess að hún er samkynhneigð. Samtökin, sem kalla sig One Million Moms, hafa hrundið af stað mikilli áróðursherferð þar sem þau hvetja fyrirtækið til að hætta við samstarfið við DeGeneres og velja sér heppilegri fulltrúa.

DeGeneres skrifaði nýlega undir samning við fataverslunarkeðjuna JC Penney um að gerast talsmaður fyrirtækisins. Ákvörðunin hefur mælst afar illa fyrir hjá hinum íhaldssömu kvennasamtökum sem finnst hún óhæf til starfsins vegna kynhneigðar hennar og fullyrða í yfirlýsingu að fólk muni sniðganga verslunina í stórum stíl verði DeGeneres áfram innanborðs.

Hún hefur nú snúist til varnar og í spjallþætti sínum á þriðjudag fordæmdi DeGeneres fordómafullt viðhorf samtakanna. „Eins og margir vita er ég gengin til liðs við JC Penney og er stolt af því,“ sagði hún. „Aftur á móti eru samtök kölluð One Million Moms sem eru ekki eins sátt. Ég aðhyllist heiðarleika, manngæsku og jafnræði og hef að leiðarljósi að koma fram við aðra eins og ég kýs að þeir komi fram við mig.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is