Brúðkaupsferðin í uppnámi vegna innbrots

Trúlofunarhringur brúðarinnar er nú í höndum kóna. stækka

Trúlofunarhringur brúðarinnar er nú í höndum kóna. mbl.is/Golli

Nýgift bresk hjón sem ætluðu í brúðkaupsferð til Íslands, voru rænd og þurfa að nota peningana sem voru eyrnamerktir ferðinni í að bæta öryggi á heimili sínu. Ránið átti sér stað á brúðkaupsnóttina og var m.a. trúlofunarhring brúðarinnar og vegabréfi brúðgumans stolið. Til stóð að eyða hveitibrauðdögunum á Íslandi en nú eru þau áform í uppnámi.

Parið yfirgaf heimili sitt síðdegis föstudaginn 3. febrúar til að láta pússa sig saman á Rogerthorpe Manor hótelinu í Pontefract í Vestur-Jórvíkurskíri.

Eftir að hafa játast hvort öðru í vitna viðurvist snéru þau heim á laugardagsmorgninum og komust þá að því að brotist hafði verið inn og verðmætum stolið.

Meðal þess sem var stolið var trúlofunarhringur brúðarinnar og vegabréf brúðgumans. Draumafríið til Íslands verður því að bíða.

„Við erum algjörlega eyðilögð,“ segir brúðguminn Ian Morris. „Búið er að spilla minningum okkar frá brúðkaupinu með innbroti.“

Dóttir hjónanna er mjög hrædd um að þjófarnir komi aftur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is