Átta þúsund á franskri hátíð

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í The Artist stækka

Leikararnir Jean Dujardin og Berenice Bejo í The Artist Reuters

Franskri kvikmyndahátíð lýkur formlega í dag en tæplega átta þúsund manns hafa nú þegar sótt myndirnar á hátíðinni. 

Alls hafa um fimm þúsund manns séð kvikmyndina The Artist og er Stríðsyfirlýsing númer tvö með tæplega eitt þúsund manns og hinar átta myndirnar eru nokkuð jafnar.

„Ekkert lát hefur verið á aðsókninni síðustu daga og er greinilegt að fjölmargar myndir á hátíðinni eiga ennþá heilmikið inni. Hefur því verið brugðið á það ráð að sýna myndirnar á hátíðinni áfram, annars vegar í Háskólabíói og hins vegar í Bíó Paradís,“ segir á vef Græna ljóssins sem stóð fyrir hátíðinni.

The Artist verður sýnd áfram í Háskólabíói en hinar myndirnar verða sýndar áfram í a.m.k. eina viku í Bíó Paradís. Hátíðin flyst svo til Akureyrar í Borgarbíó, laugardaginn 18. febrúar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is