Björk aflýsti tónleikum

Björk flytur lög af plötunni Biophilia. stækka

Björk flytur lög af plötunni Biophilia.

Björk Guðmundsdóttir aflýsti tónleikum, sem hún ætlaði að halda í New York Hall of Science í New York í kvöld. Fram kemur á vef blaðsins New York Times að tónleikunum hafi verið aflýst vegna veikinda.

Björk hélt tónleika í borginni sl. föstudag og mánudag og einnig eru áformaðir tónleikar á sunnudag, miðvikudag og laugardag.

New York Times fjallaði um tónleika Bjarkar á föstudag og fór mjög lofsamlegum orðum um söngkonuna og íslenska kórinn Graduale Nobili, sem sagður er leika mikilvægt og jafnvel hetjulegt hlutverk á tónleikunum.

Umfjöllun New York Times

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is