|
Monitor
| mbl
| 9.2.2012
| 15:05
Draumur fyrir mann í minni stöðu
„Þetta var mikil keyrsla, við tókum upp á fjórum tökustöðum á einum degi og þá hjálpaði til að vinna með svona fagmanni eins og Söruh,“ segir Rúnar Ingi Einarsson sem leikstýrði auglýsingu fyrir samstarfsverkefni stórfyrirtækisins Nike og stoðtækjaframleiðandans Össurar sem birt var á dögunum. Með aðalhlutverk auglýsingarinnar fer íþróttakonan Sarah Reinertsen sem hleypur með gervifót frá Össuri. „Það var náttúrlega rosa skemmtilegt að vinna með henni enda er hún stórmerkilegur íþróttamaður. Það sem hún hefur afrekað þrátt fyrir fötlun sína er ótrúlegt. Hún var til dæmis fyrsta konan með gervifót til að klára Ironman-þríþrautina og svo tók hún meira að segja þátt í raunaveruleikaþáttunum Amazing Race. Við lögðum strax upp með að sýna hennar karakter, hún er hvetjandi og lætur ekkert stoppa sig,“ segir leikstjórinn.
Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.









