Harry prins til Afganistans?
Harry Bretaprins kann að verða sendur aftur til Afganistans, þar sem hann hefur nú lokið þjálfun og er orðinn fullgildur flugmaður Apache árásarþyrlu. Prinsinn hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir hæfni sína sem skytta. Frá þessu greindi breska varnarmálaráðuneytið í dag.
Harry er nú 27 ára gamall og hefur undanfarna 18 mánuði ástundað stífa þjálfun sem þyrluflugmaður, þar á meðal með sérverkefni í Bandaríkjunum. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins staðfestir að hugsanlega verði prinsinn sendur til Afganistans, en hann þurfi fyrst að afla sér frekari starfsreynslu. Tveggja manna Apache þyrlur eins og þær sem Harry flýgur hafa m.a. verið notaðar til að elta uppi skæruliða talíbana í Afganistan.
Fjölmiðlar hafa áður greint frá því að Harry hafi mikinn hug á því að snúa aftur til Afganistans, þar sem hann gegndi herþjónustu til skamms tíma árið 2008 en var kallaður með hraði aftur heim þegar spurðist út hvar hann væri. Eldri bróðir hans Vilhjálmur starfar einnig fyrir Konunglega breska flugherinn og er nú staddur í sex vikna æfingaferð á Falklandseyjum.
Skrifstofa Karls Bretaprins sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að krónprinsinn væri afar stoltur af árangri yngsta sonar síns í þjálfuninni.









