Katy Perry í X Factor
Söngkonan Katy Perry verður nýr dómari í bandaríska hæfileikaþættinum X Factor en Simon Cowell ákvað sem kunnugt er að láta Paulu Abdul og Nicole Scherzinger fara. Fyrsta þáttaröðin af X Factor í Bandaríkjunum fékk ekki jafnmikið áhorf og vonir stóðu til. Cowell tók því þá ákvörðun að skipta út dómurum og fá stórstjörnur til liðs við sig, í því skyni að auka vinsældir þáttarins. Orðrómur var á kreiki um að Cowell hefði boðið Beyoncé himinháar upphæðir fyrir að setjast í dómarasætið en Cowell segir það tóman þvætting, það hafi aldrei staðið til.
Perry tók að sér starf gestadómara í breska þættinum X Factor fyrir tveimur árum og tókst þá vel upp. Í viðtali í sjónvarpsþættinum Extra TV í vikunni sagði Cowell að það hefði verið frábært að vinna með henni, hún væri hörð í horn að taka en á jákvæðan hátt. Cowell var spurður út í sögusagnirnar um að hann hefði fyrst boðið Beyoncé starf Perry og lofað henni háum fjárhæðum en hann hristi aðeins höfuðið og fannst spurningin greinlega fáránleg.










