|
Monitor
| Cover Media
| 9.2.2012
| 22:40
Kelly Clarkson ekki samkynhneigð
Kelly Clarkson segist una sér vel einhleyp.
Sönkonan, sem er 29 ára, hefur ekki verið við karlmann kennd í þó nokkurn tíma.
Nýlega spruttu upp sögusagnir í fjölmiðlum um það að hún væri samkynhneigð sökum karlmannsleysisins.
Kelly er ringluð yfir því hvernig almenningur horfir á einkalíf hennar.
"Fólk er ansi upptekið af sambandsstöðu minni," sagði Kelly við tímaritið Now. "Þegar ég segi fólki að ég sé ánægð svona einhleyp, vill það ekki trúa mér. Þau segja: "Þú hlýtur að vera vansæl svona ein."
Kelly er undrandi á því að sumt fólk neiti að taka því alvarlega sem hún segir.
"Ég er ekki samkynhneigð. Ef ég væri það þá myndi ég segja: "Ég elska konur." Þess vegna fer þetta í taugarnar á mér," útskýrði Kelly. "En ef ég myndi segja það þá hef ég það samt á tilfinningunni að fólk myndi segja við mig: "Þú ert bara að reyna að vinna samkynhneigða áheyrendur á þitt band.""
Fyrr í þessum mánuði útskýrði Kelly í the Mirror að það að vera óbundin hefði góð áhrif á líf hennar í augnablikinu.
"Ég er svolítið sjálfselsk og ákkúrat núna kann ég vel við að vera einhleyp. Ég nýt þess að vinna jafn mikið og ég geri," sagði Kelly.
Kelly er tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í ár fyrir besta kántrí dúettinn.









